Ætli það sé ekki kominn tími fyrir nýtt blogg...
Í síðustu viku þá fóru ég og Hildur Þóra í ferðalag

við lögðum
af stað á þriðjudeginum og byrjuðum á því að tjalda og gista eina
nótt í Kollafirði í mikilli rigningu og þoku en við náðum að finna
okkur lítin grænan blett og tjalda á honum og svo grilluðum við og
sátum í rigninguni og borðuðum pylsur

svo þegar að við vorum
að fara að sofa þá var kominn smá vindur og við þurftum að leggja
bílnum fyrir tjaldið svo að það mundi ekki fjúka

svo þegar að
við vöknuðum þá var þokan farin og við sáum að við vorum nánast
búnar að tjalda í hlaðinu hjá einhverju fólki

þannig að við
pökkuðum saman og drifum okkur í burtu

Svo var leið okkar
haldið vestur á Rauðasand sem er án efa einn fallegasti staður á
landinu og við tjölduðum þar hjá bústaðnum hjá ömmu og afa og
gistum þar í 3 nætur og fórum að túristast aðeins um svæðið því að
Hildur hafði aldrei komið á vestfirðina áður... fyrsta daginn eftir
að við komum tókum við því rólega og fórum í sund á Patró með litlu
systir og borðum á Þorpinu

svo á föstudeginum við fórum í
Selárdal og skoðuðum listaverkin þar eftir listamanninn með
barnshjartað Samúel Jónsson og sáum hvar Gísli frá Uppsölum bjó og
svo fórum við að skoða Dynjanda og ég þessi gáfaða er að keyra
þegar að Hilur sér skilti sem að stendur Dynjandi á og bendir mér á
það og við sjáum bara á og pínulítinn foss og ég varð alveg brjáluð
hvort að við hefðum keyrt alla þessa leið fyrir þessa sprænu

en þá var þetta bara byrjunin á ánni og svo þegar að við komum
niður af fjallinu þá sáum við fossinn sem að er geggjað flottur

svo komu mamma, pabbi og Yrja litla vestur á föstudagskvöldinu og
svo á laugardeginum þá fórum við á Látrabjarg og ætluðum að skoða
það en þegar að við komum þangað þá var svo hvast að við stóðum
ekki í lappirnar og vorum næstum foknar fram af bjarginu þannig að
við fórum bara heim á Haukaberg og gistum þar

svo löguðum við af
stað í bæinn í hádeginu á sunnudag og það gekk bara vel á leiðini
heim þangað til að við komum úr göngunum því þar beið okkar þessi
svaka bíla röð og það tók okkur einn og hálfan tíma að komast uppí
mosó því að það varð bílslys þarna og brilljón manns að reyna að
komast heim til sín eftir helgina....

en svo þegar að ég kom heim
þá voru Fanný, Ívar, Lára og Jón Ingi komin þangað og Ívar búin að
grilla handa okkur

svo fóru ég og Fanný í pottinn í afslöppun
með rósavín

sem að var nátturulega bara fullkominn endir á
helgini....

Þetta er komið nóg í bil ....
Knús og kossar
Mæja ferðalangur